
Á þessu vefnámskeiði sem byggt er á efni frá KMC er farið yfir í stuttu máli öll helstu atriði sem tengjast upbyggingu og virkni rafbíla. Einnig er farið yfir hleðslumál og öryggi ásamt algengum spurningum sem vakna upp hjá fólki sem er í hugleiðingum um að skipta yfir í rafbíl. Námskeiðið er í heildina 15 stutt mynbönd sem taka fyrir ákveðið málefni og útskýra með myndrænum hætti. Rafbílar KIA eru í forgrunni en margt af því sem kemur fram á einnig við rafbíla almennt og því í raun gagnlegt öllum þeim sem vilja fræðast nánar um rafbíla.
Á þessu námskeiði verður farið yfir ýmis atryði sem viðkoma rafbílum og sölu þeirra
Þetta námskeið er skipt upp í 3 hluta:
1. Grunnatriði í tengslum við rafbíla og söluferli þeirrra (Introduction to electrification)
2. Nánar farið í rafbílinn (Advanced theory)
3. Söluferli (Sales process)
Þetta námskeið er á ensku og ætlað þeim sem eru í samskiptum við viðskiptavini vegna sölu eða þjónustu á rafbílum.
